Reiðmennskuverðlaun FT veitt

  • 20. júlí 2015
  • Fréttir
Áhugamannamót Íslands

Félag tamningamanna mætti á Áhugamannamót Íslands og tók þar út keppendur. Veitt voru reiðmennsku verðlaun FT en þau hlaut Hjördís Rut Jónsdóttir. 

Hjördís sigraði fjórgang V5 á Hárek frá Hafsteinsstöðum með einkunnina 6,67 en hún varð einni í 4. sæti á Straum frá Írafossi í tölti T7 með einkunnina 6,50. Reiðmennsku verðlaun FT eru veitt þeim sem sýnir framúrskarandi reiðmennsku ásamt öðrum þáttum. 

„Fulltrúar félags tamningamanna fylgdust með frábæru, vel skipulögðu áhugamannamóti Íslands á Hellu, sem var framtak Sigurðar Sigurðarsonar og félaga. Reiðmennskuverðlaun FT hlaut Hjördís Rut Jónsdóttir sem reið svo fallega hesti sínum til sigurs í V5 og var í úrslitum í T7. Hjördís vakti athygli fyrir fágaða, einbeitta og sanngjarna reiðmennsku, prúða framkomu og heilbrigða hesta. Innilega til hamingju mótshaldarar, keppendur allir og Hjördís Rut“ Súsanna Sand, formaður FT.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link