Hestadagar í Reykjavík

  • 27. mars 2013
  • Fréttir
Hestadagar í Reykjavík

„Hestadagar í Reykjavík er samvinnuverkefni LH, Höfuðborgarstofu, og hestamannafélaganna á stórhöfuðborgarsvæðinu og verða haldnir dagana 4. – 7. apríl næstkomandi.  

Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði þetta árið. Föstudaginn 5. apríl ætla hestamannafélögin Fákur, Hörður, Sóti, Sprettur og Sörli að bjóða gestum og gangandi í félögin sín. Valin hesthús verða opin fyrir áhugasama og hestateymingar verða í boði í reiðhöllum félaganna ásamt léttum veitingum. 

Öll hestamannafélögin verða með sömu dagskrá á sama tíma.

17:00 – 19:00

Opin hesthús (valin og merkt með blöðrum) Teymingar í reiðhöllum félaganna 

18:00 Börn og unglingar sýna atriði 

Kaffi, svali og kjötsúpa verður í boði í hverju félagi.

Eins og í fyrra verður farin skrúðreið á laugardeginum 6. apríl og að þessu sinni verður farinn hringur í miðbænum.  Kl. 13:00-16:00 – Dagskrá í Húsdýragarðinum – teymt undir börnum, fræðsla um hestinn, heitjárning sýnd, byggingadómar. Hestar fléttaðir og fleira skemmtilegt.  

FRÍTT INN ALLAN DAGINN

   Um kvöldið endum við svo á að horfa á flottustu töltara landsins á skautasvellinu í Laugardal: „Ístölt – þeir allra sterkustu“.

Sunnudagurinn er tileinkaður æskunni.  Sýningin Æskan og hesturinn er fjölskylduhátíð í Reiðhöllinni í Víðidal sem öll hestamannafélögin á stórhöfuðborgarsvæðinu standa að. Haldnar verða tvær sýningar á sunnudeginum 7.apríl.  Sýning þessi hefur alltaf verið gríðarlega vinsæl og þar má sjá framtíðarknapa Íslands leika listir sínar með fákum sínum.

 

Dagskrá 
 
Fimmtudagur 4. apríl
 
Kl. 16:00 – Setningarathöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur 
Borgarstjóri Reykjavíkur kemur í hestvagni að ráðhúsinu ásamt fríðu föruneyti og setur hátíðina. 
Allir velkomnir, léttar veitingar í boði.
 
Föstudagur 5. apríl
 
Hestamannafélögin á höfuðborgarsvæðinu bjóða heim!
 
Föstudaginn 5. apríl ætla hestamannafélögin Fákur, Hörður, Sóti, Sprettur og Sörli að bjóða gestum og gangandi í félögin sín. Valin hesthús verða opin fyrir áhugasama og hestateymingar verða  í boði í reiðhöllum félaganna ásamt léttum veitingum.
 
Öll hestamannafélögin verða með sömu dagskrá á sama tíma.
 
17:00 – 19:00
Opin hesthús (valin og merkt með blöðrum) Teymingar í reiðhöllum félaganna
 
18:00 Börn og unglingar sýna atriði 
 
Kaffi, svali og kjötsúpa verður í boði í hverju félagi.
 
 
Laugardagur 6. apríl 
 
Kl. 13:00-16:00 – Dagskrá í Húsdýragarðinum – teymt undir börnum, fræðsla um hestinn, heitjárning sýnd, byggingadómar. Hestar fléttaðir og fleira skemmtilegt.   
FRÍTT INN ALLAN DAGINN
 
Kl. 13:00 – Skrúðreið  frá BSÍ – ca. 150 hestar – BSÍ, upp á  Skólavörðuholt, niður Skólavörðustíg, yfir Lækjargötu, Austurstræti, Pósthússtræti, Kirkjustræti og Tjarnargata að Ráðhúsi, áfram Tjarnargötu, í gegnum Hljómskálagarð, yfir Njarðargötu og aftur að BSÍ.
 
Kl. 20:00 – Ístölt þeirra allra sterkustu í Skautahöllinni í Laugardal
 
Sunnudagur 7. apríl 
 
Æskan & hesturinn í reiðhöllinni í Víðidal kl. 13:00 og 16:00

Dagskrá hestadaga má finna inn á www.lhhestar.is  

Viðburður sem engin áhugamaður um íslenska hestinn ætti að missa af!“ segir í tilkynningu frá LH

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link