Glæsilegir folar á ungfolasýningu HS
Ungfolasýning Hrossaræktarsamtaka Suðurlands fór fram laugardaginn 9. apríl í Ölfushöllinni.
Alls voru 17 folar sýndir, 9 tveggja vetra og 8 þriggja vetra. Dómarar á sýningunni voru Halla Eygló Sveinsdóttir og Jón Vilmundarson. Folarnir voru metnir fyrir sköpulag og hreyfingar. Dómarar röðuðu fimm efstu folunum í hvorum flokki.
Tveggja vetra:
1. IS2009157651 Lukku-Láki frá Stóra-Vatnsskarði
2. IS2009135064 Dofri frá Einhamri 2
3. IS2009181827 Stekkur frá Skák
4. IS2009156957 Klakinn frá Skagaströnd
5. IS2009187144 Kandís frá Litlalandi, Ölfusi
Þriggja vetra:
1. IS2008188336 Jarl frá Jaðri
2. IS2008182372 Dúsifal frá Hólaborg
3. IS2008181415 Veigar frá Sauðholti 2
4. IS2008181387 Gauti frá Litlalandi, Ásahrepp
5. IS2008187722 Gáll frá Dalbæ
Að mati áhorfenda voru glæsilegustu folarnir þeir Lukku-Láki frá Stóra-Vatnsskarði og Veigar frá Sauðholti 2. Hrossaræktarsamtök Suðurlands óska ræktendum og eigendum innilega til hamingju með þessa glæsilegu fola.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH