Opna Bautamótið verður haldið 19. febrúar
Opna Bautamótið í tölti fer fram í Skautahöllinni á Akureyri, laugardaginn 19. febrúar n.k. og hefst kl. 20:00. Það er Bautinn á Akureyri sem stendur fyrir mótinu og nú á fertugasta afmælisári sínu en Bautinn hefur verið starfræktur frá árinu 1971.
Skráning er hafin og hér má sjá nánari upplýsingar fyrir gesti sem og keppendur:
Skráningargjald kr. 2.500,- Keppendur skulu hafa náð 16 ára aldri. Hjálmaskylda á svellinu. Keppendum er heimilt að skrá fleiri en eitt hross til leiks. Riðnir 3 hringir á tölti (hægt, hraðamun og fegurðar). Tvöfallt vægi á hægatöltinu. Æfingatími fyrir keppendur er föstudagskvöldið 18. feb. kl. 21:15 – 22:15 (innifalið í skráningagjaldi). Þar hafa einungis rétt á að mæta þau hross sem skráð eru til leiks með “sínum” knöpum. Þátttökugjald greiðist á staðnum.
Tekið er við skráningum í netfang [email protected] og í símum: 462-2101, 893-9579 (Anna) og 893-1579 (Arnar) til kl. 21:00 miðvikudagskvöldið 16. feb. n.k. Að móti loknu verður opið hús í TopReiterhöllinni, reiðhöll Léttisfélaga. Aðgangseyrir að mótinu er kr. 2.500 en frítt fyrir 12 ára og yngri. Sama dag mun verða haldin sölusýning hrossa í TopReiterhöllinni og hefst hún kl. 13. Nánari upplýsingar og skráning á hana mun verða í gegnum heimasíðu Léttis, www.lettir.is, þegar nær dregur. Allir hjartanlega velkomnir á Bautamót 2011.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH