Vel tamin reiðhross seljast vel ytra

  • 18. október 2010
  • Fréttir
Vel tamin reiðhross seljast vel ytra

Bjarni Jónasson tamningamaður á Narfastöðum í Skagafirði er nýkominn heim eftir dvöl í Sviss.
Eiðfaxi sló á þráðinn til Bjarna?
„Ég fer alltaf af og til, til Sviss, hef farið þangað í mörg ár og á góða vini og viðskiptavini þar“ sagði Bjarni.
„Núna fóru 10 hross og þjálfaði ég þau í hálfan mánuð. Það var ánægjulegt hve vel þetta gekk og sýndu engin þeirra nokkur einkenni veikinda, þau voru öll frísk og eru það enn. Fólkið úti hefur engar áhyggjur af þeim.“
Hvernig er sala?
„Það er ekkert mál að selja vel tamin og góð reiðhross úti. Málið er að mörg af þeim hrossum sem verið er að bjóða hér á landi sem reiðhross eru einfaldlega gallagripir, ekki nógu vel tamin. Við getum alveg selt reiðhross út ef þau eru vönduð og vel undirbúin“.
Hvað tekur nú við?
Það er búið að vera að frumtemja hér og er allt á fullu, þjálfun komin í gang og eru menn hér fyrir norðan bara að undirbúa sig fyrir Landsmót. Það var mikið spurt ytra um Landsmótið, hvort að af því verði eða ekki og er mikill áhugi fyrir því.“.
Er heilsufar hrossa gott fyrir norðan?
„Þetta liggur aðeins hér yfir. Hingað eru að koma hross víða að og höfum við orðið aðeins vör við hósta í einu og einu hrossi en þau eru fljót að lagast og hætta hóstanum. Ekkert nefrennsli er í gangi og eru hrossin öll frískleg“ Sagði Bjarni að lokum.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link