Hálfgerð sjómennska
.
Fjöldi íslenskra knapa starfar drjúgan hluta ársins við reiðkennslu í útlöndum. Eiðfaxi ræddi við sex hestamenn sem fara utan að kenna allmörgum sinnum á hverju ári.
Kem oftar til Kastrup en Reykjavíkur
Sigurður Óli Kristinsson
Ég fer bæði út til að kenna og sýna kynbótahross. Frá áramótum og fram á vor tengi ég þetta tvennt saman, fer og prófa kynbótahross, legg drög að áframhaldandi þjálfun og kenni svo kannski laugardag og sunnudag áður en ég fer heim,“ segir Sigurður Óli Kristinsson. Sigurður Óli Kristinsson. Á vorin aukast ferðir vegna kynbótasýninga en kennslan minnkar að sama skapi. „Á sumrin fer ég lítið út vegna anna hér heima en á haustin fer ég út eingöngu til að kenna.“ Sigurður Óli fer út um 15 til 20 skipti á ári. „Ég reyni að vera sem mest yfir helgar svo þetta hafi sem minnst áhrif á starfsemina hérna heima,“ segir Sigurður Óli sem kennir og sýnir kynbótahross eingöngu í Danmörku. „Innan Danmerkur er ég með nokkra fasta staði.“ Tengingin við Danmörku er sprottin út frá góðu samstarfi hans við Jón Mar Guðmundsson. „Ég sýni allt fyrir hann og kennslan hefur þróast út frá ferðum mínum til hans.“ Nemendur Sigurðar Óla eru af öllum getustigum. „Þetta er mest áhugafólk sem ég tek í einkatíma en á námskeiðshelgunum fær hver og einn tvo til þrjá tíma með mér.“ Hann segist kenna mikið til sama fólkinu ár eftir ár. „Þannig sér maður hvernig fólki hefur unnist á þeim tíma sem líður á milli námskeiða. Það er gaman að sjá framfarirnar hjá fólki sem maður hefur kennt í nokkur ár.“ Sigurður Óli lítur á kennsluna aðallega sem vinnu. „Ferðalögin eru dálítið lýjandi enda kem ég oftar til Kastrup en til Reykjavíkur,“ segir hann glettinn en viðurkennir að kennslan geti líka verið skemmtileg. „Það er skemmtilegt og gefandi á sjá nemandann kveikja á perunni. Annars held ég að ég hafi sjálfur lært mest af því að kenna á þessum námskeiðum. Maður kannski hjálpar nemanda við að leysa eitthvert vandamál, fer heim og fær svipaðan hest í hesthúsið. Þá get ég yfirfært lausnina á hann. Mér finnst kennslan gefa mér víðari sýn og maður verður opnari fyrir öllu. Það gerir mér sem knapa mjög gott.“ Sigurður Óli segist hafa kynnst mörgum í gegnum kennsluna. „Ég hef eignast fullt af góðkunningjum og nokkra góða vini. Svo kemur stöku sinni fyrir að mað- ur fær fyrirspurnir um hesta og það skilar sér í einni og einni sölu. Kosturinn er vissulega sá að maður þekkir getu þess sem er að biðja um hest og getur þá mælt með hesti sem hentar.“ Er kennslan vel borguð? „Þetta eru betri laun en að vera heima og temja en það þarf svo sem engin forstjóralaun til þess,“ svarar hann glettinn. „Þetta er mjög góður aukapeningur þó maður sé vissulega mikið í burtu, en það á líka við um marga aðra eins og sjómenn. „Þetta eru vissulega uppgrip sem gott er að hafa.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH