Gæðingakeppniog úrtaka

  • 22. maí 2014
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Hestamannafélögin Máni og Brimfaxi

Gæðingakeppniog úrtaka Mána og Brimfaxa 2014

Gæðingakeppni og úrtaka Mána og Brimfaxa fer fram þann 29 maí nk á Mánagrund.

Í boði eru  eftirtaldir flokkar:

Pollar teymdir     skráning á [email protected]     skráningargjald  kr 1.000

Pollar ríðandi     skráning á [email protected]       skráningargjald  kr 1.000

Tamningaflokkur (5 vetra og yngri)  skráning á [email protected]    skráningargjald  kr  3.500

A-flokkur áhugamanna ( tölt, brokk, skeið – riðið eftir þul, 3 inná í einu )   skráning á [email protected]   skráningargjald  kr  3.500

B-flokkur áhugamanna (tölt, brokk, yfirferð – riðið eftir þul, 3 inná í einu)   skráning á [email protected]  skráningargjald  kr  3.500

Við skráningu þarf að koma fram nafn knapa og hests og í hvaða flokki á að keppa ..

Í þessar greinar hér fyrir ofan þarf að greiða með millifærslu:  bnr.  0121-26-3873   Kt. 690672-0229  og setja sem skýringu hestaþing 2014 og senda kvittun á [email protected]

 

Lágmarks þátttaka í áhugamannaflokkana og   eru 5 knapar.

 

Barnaflokkur         skráningargjald  kr 4.500

Unglingaflokkur     skráningargjald  kr 4.500

Ungmennaflokkur    skráningargjald  kr 4.500

A-flokkur   skráningargjald  kr 4.500

B-flokkur    skráningargjald  kr 4.500

Skráning á mótið er hafin á eftirfarandi vefslóð: http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add

Upplýsingar sem þurfa að koma fram þar eru:

  • Kennitala knapa og nafn
    IS númer hests, nafn og uppruni
    Flokkur sem keppandi vill keppa í
    Kreditkortanúmer og gildistími
    Símanúmer knapa eða forráðamanns

Skráningu lýkur  þriðjudaginn 27 maí kl 18.00

Grillveisla verður í Mánahöllinni eftir að dagskrá mótsins. Verð í grill fyrir fullorðna er 1500kr og 500kr fyrir börn undir 13 ára. Allir velkomnir og höfum gaman saman.

Skráning í grill er á [email protected]

 eða senda sms í síma 869-3530.

Passa þarf að velja mót í efstu línu, velja svo Mána sem mótshaldara og fylla svo inní stjörnumerkta reiti.
Neðst er hægt að velja um atburð og þá er valið Hestaþing Mána og Brimfaxa (neðri valmöguleiki). Þá birtast, fyrir neðan, þær greinar sem í boði eru á mótinu.

Keppandi velur sér keppnisgrein. Þegar keppandi hefur valið það sem við á og fyllt út alla stjörnumerkta reiti er pöntunin sett í körfu sem er hnappur neðst á síðunni. Hægt er að bæta við fleiri skráningum og setja í körfuna. Þegar keppandi er búinn að skrá þá er farið í vörukörfuna efst í hægra horninu og gengið frá greiðslu þar, hægt er að velja um kortagreiðslu eða millifærslu.
Ath að ef greitt er með millifærslu þá verður að setja pöntunarnúmer sem tilvísun og senda póst á: [email protected]

Ef greiðsla hefur ekki borist þá er keppandi ekki skráður á mótið.

Ef eitthvað er óljóst má senda fyrirspurn í pósti á [email protected]    Með von um að sjá sem flesta.

Mótanefndir Mána og Brimfaxa

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link