Fræðslukvöld Hólanema
„Bústólpahöllin í Húsavík hefur nýlega verið reist og þess vegna ætla þær Malin Jansson, Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir og Christina Mai, þriðjaársnemar á Hólum, að halda fræðslukvöld þar og kynna fjölbreytta og uppbyggilega þjálfun reið- og keppnishesta.
Eftir stuttan fyrirlestur sem fjallar meðal annars um markmiðasetningu fyrir mismunandi hesta og uppbyggilega líkamsbeitingu reiðhesta, verður haldin sýnikennsla sem sýnir leiðir til árangsríkrar þjálfunar reið- og keppnishesta.
Fræðslukvöldið verður Miðvikudagskvöldið 13. febrúar kl. 19:30 í Bústólpahöllinni við Húsavík og aðgangseyrir er 500 kr. (ekki tekið við kortum),“ segir í tilkynningu frá þeim stöllum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH