KS deildin – Ráslistar
Þriðja keppniskvöld Meistaradeildar KS í hestaíþróttum er framundan. Keppni fer ekki fram í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki að þessu sinni heldur í Léttishöllinni á Akureyri.
Á síðasta keppnistímabili var í fyrsta sinn keppt á Akureyri í KS deildinni og gafst það ákaflega vel og því var ákveðið að halda því áfram.
Fyrirfram má búast við spennandi og áhugaverðri keppni, þar sem að á ráslistanum má til að mynda finna þrjá stóðhesta með yfir 9,0 í hæfileikaeinkunn í kynbótadómi. Þetta eru þeir Nátthrafn frá Varmalæk, Þráinn frá Flagbjarnarholti og Trymbill frá Stóra-Ási. Einnig er á ráslistanum Viðja frá Hvolsvelli en hún stóð efsti í flokki fimm vetra hryssna á Landsmótinu á Hólum 2016.
Keppni hefst klukkan 19:00, horfa má á beina útsendingu á netinu gegn vægu gjaldi ef smellt er hér.
Hestamenn norðanlands eru hvattir til að mæta í Léttishöllina og bera augum bestu knapa og hesta norðurlands í skemmtilegri keppni.
Nr. Knapi Hestur
1 Líney María Hjálmarsdóttir Nátthrafn frá Varmalæk
2 Fanndís Viðarsdóttir Bergsteinn frá Akureyri
3 Elvar Einarsson Roði frá Syðra-Skörðugili
4 Ísólfur Líndal Þórisson Sabrína frá Fornusöndum
5 Mette Mannseth Kalsi frá Þúfum
6 Anna Björk Ólafsdóttir Stjarni frá Laugavöllum
7 Guðmar Freyr Magnússon Sóta frá Steinnesi
8 Finnbogi Bjarnason Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli
9 Elvar Logi Friðriksson Eva frá Grafarkoti.
10 Arnar Bjarki Sigurðarson Snillingur frá Íbishóli
11 Konráð Valur Sveinsson Losti frá Ekru
12 Sigrún Rós Helgadóttir Halla frá Kverná
-15 mín hlé-
13 Viðar Bragason Þórir frá Björgum
14 Skapti Steinbjörnsson Hrafnista frá Hafsteinsstöðum
15 Sina Scholz Nói frá Saurbæ
16 Artemisia Bertus Herjann frá Nautabúi
17 Snorri Dal Engill frá Ytri-Bægisá I
18 Jóhann Magnússon Mjölnir frá Bessastöðum
19 Magnús Bragi Magnússon Ljósvíkingur frá Steinnesi
20 Þórarinn Eymundsson Þráinn frá Flagbjarnarholti
21 Vignir Sigurðsson Salka frá Litlu-Brekku
22 Bjarni Jónasson Viðja frá Hvolsvelli
23 Pétur Örn Sveinsson Hlekkur frá Saurbæ
24 Gísli Gíslason Trymbill frá Stóra-Ási
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH