Fagmannaspjall í jólablaðinu – niðurstöður heilbrigðisskoðana ógnvekjandi-
Eiðfaxi bauð litlum hóp atvinnufólks til spjalls á dögunum og var viðfangsefnið ýmis málefni sem hafa verið áberandi í umræðunni undanfarið. Fundurinn var bæði skemmtilegur og fróðlegur og komu fram ýmsir vinklar á málefnin. Hópinn skipuðu þau Anton Páll Níelsson, Hinrik Bragason, Mette Manseth og Þorvaldur Árni Þorvaldsson, allt fólk sem hefur fulla atvinnu af tamningum, þjálfun og kennslu auk þess að taka virkan þátt í sýningum og keppnum.
Að umræðu lokinni lagði Eiðfaxi nokkrar spurningar, þ.á.m. voru þau beðin um viðbrögð við niðurstöðum heilbrigðisskoðanna á keppnishestum Landsmóts 2011?
Svör viðmælenda okkar fara hér á eftir en greinina má nálgast í jólablaði Eiðfaxa en vefútgáfa blaðsins er komin út hér.
Blaðið mun svo berast til áskrifenda eftir helgi.
Einnig er hægt að festa kaup á jólaeintaki hér í vefversluninni.
Knapinn ber ábyrgð á velferð hestsins
Hinrik Bragason: „Að sjálfsögðu er ekki gott að áverkar finnist yfir höfuð á keppnishrossum. Eftirlit dýralækna og skráning á áverkum ætti að leiða til þess að knapar verði sér meðvitaðri um hvað valdið getur áverkum og geti í framhaldinu varist ranga notkun búnaðar.“
Anton Páll Níelsson: „Þessar niðurstöður/staðreyndir eru algjörlega óásættanlegar og vekja upp spurningar um hvert við erum komin, hvar við erum stödd, hvert við stefnum með reiðmennskuna. Við hestafólk verðum að axla ábyrgðina og bregðast við með afgerandi hætti. Allir verða að leggjast á eitt, dómarar, knapar, hesteigendur, áhorfendur og skipuleggjendur keppna og kynbótadóma.
Við þurfum að endurskoða smekk okkar á því hvað okkur þykir gott og fallegt og hvernig aðferðir eru notaðar til að ná því fram. Knapinn ber ábyrgð á velferð hestsins. Að þjóna hesti er list, að níðast á hesti er vandalaust.“
Mette Manseth: „Þær eru ógnvekjandi. Það þarf að gera eitthvað róttækt í þessu. Það á ekki að þurfa að sjá á hestunum þótt þeir nái árangri. Hélt líka að reglurnar segðu að hestarnir skyldu vera ósárir til að fá að keppa, en það er líklega misskilningur. Hins vegar held ég að flestir knapar sem voru með hesta sem höfðu munnáverka, sérstaklega á tannlausa bilinu á neðri kjálka, hafi ekki vitað af þeim, af því þeim hefur ekki dottið í hug að leita þar. Þetta mun breytast í gegnum upplýsingar um búnaðinn. Það vill örugglega enginn meiða hestinn sinn. Mél með tunguboga taka þrýstinginn af tungunni, en þrýstingurinn fer annað ‒ niður á góminn sem er viðkvæmari en tungan og getur hvergi falið sig eins og tungan.“
Þorvaldur Árni Þorvaldsson: „Áverkaskýrslur eftir LM 2011 eru í raun mjög alvarleg áminning til okkar hestamanna. Ef við viljum geta kallað okkur hestamenn, þá hlýtur velferð hestsins að vera forgangsatriði og því fylgir mikil ábyrgð að hugsa um hest. Það er alfarið á ábyrgð hvers knapa að sjá til þess að hesturinn komi heill frá þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur mað hestinn sinn, og er það í raun mikið áhyggjuefni ef knapar margir hverjir eru ekki meðvitaðir um að hestar þeirra séu með eymsli í munni, svo dæmi sé tekið.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH