Fræðsluþing um járningar á Hvanneyri
Hófsperra og og kvíslbandabólgur eru algengustu fótamein sem hrjá íslensk að hross mati flesra dýralækna. Svo segir alla vega í tilkynningu frá Járningamannafélagi Íslands, sem heldur ráðstefnu um járningar í samstarfi við endurmenntunardeild LBHÍ á Hvanneyri 28. – 29. október.
Aðal leiðbeinandi og gestur á ráðstefnunni verður járningameistarinn Mitch Taylor frá USA, en hann rekur járningaskóla í Kentucky í Bandaríkjunum. Aðalumfjöllunarefni ráðstefnunnar verða áðurnefnd fótamein: Almenn fræðsla um þau, orsakir, meðhöndlun og fyrirbyggjandi aðferðir.
Hesta- og járningamenn eru hvattir til að taka þátt í ráðstefnunni á Hvanneyri. Á laugardeginum verður „Dagur járninga“ með opinni dagskrá fyrir almenning með fyrirlestrum og verksýningum. Aðalfundur Járningamannafélagsins verður haldinn á Hvanneyri í tengslum við ráðstefnuna.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH