Reglur um búfársæðingar almennar

  • 26. september 2011
  • Fréttir
Engar fjöldatakmarkanir eða annað er lýtur að siðferðilegum spurningum

Reglur um búfjársæðingar eru almennar og taka að mestu á hæfi forráðamanna, aðstöðu og heilbrigði undaneldisgripa. Engar reglur lúta að siðferðilegum spurningum, til dæmis um hve margar hryssur má sæða við hverjum stóðhesti, hve marga fósturvísa má taka úr hryssu, og svo framvegis. Eins og fram kemur í Hestablaðinu og hér á vefnum, ætlar Ólafur Einarsson, hrossabóndi á Torfastöðum, að taka málið upp í Félagi hrossabænd, en hann telur nauðsynlegt að setja strangari reglur um tæknifrjóvganir áður en lengra er haldið. Sæðingar og fósturvísaflutningar verða í ÚTTEKT í næsta Hestablaði, sem kemur út í október.

Reglugerð um búfjársæðingar og flutning fósturvísa má sjá HÉR.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link