Daníel er náttúru reiðmaður
Daníel Jónsson var áberandi í sýningum á Sörlastöðum. Hann sat fjölmörg hross, nokkur þeirra voru í efstu sætum og allmörg náðu einkunn inn á Landsmót.
Margir höfðu á orði hve hrossin færu vel hjá Daníel, sátt og spilandi mjúk. Ekki svo að skilja að kappinn sé neinn byrjandi, en að margra mati hefur hann aldrei verið betri. Enda er hann eftirsóttur knapi og til marks um það bíða hans 40 sýningar á Gaddstaðaflötum næstu tvær vikurnar.
Þá má minna á að Daníel er ekki bara kynbótaknapi. Hann hefur einu sinni setið efsta hest í A flokki á Landsmóti og tvisvar verið í öðru sæti. Hann var efstur eftir forkeppni í fimmgangi á HM2009 í Sviss og varð Íslandsmeistari í greininni það ár. Einnig hefur hann náð toppum í töltkeppni og klárhestasýningum. Er þetta aðeins brot af ferlinum.
Að lokum skal þess getið til gamans að Daníel er sjálfmenntaður í faginu. Náttúru reiðmaður eins og það er kallað. Án efa verður gaman að fylgjast með þessum snjalla reiðmanni á LM2011 á Vindheimamelum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH