Sörlastaðir leggja línurnar

  • 30. maí 2011
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
121 kynbótahross komið inn á Landsmót

Eitt hundrað tuttugu og eitt kynbótahross er komið inn á LM2011 eftir kynbótasýninguna á Sörlastöðum. Sextíu og fjórir stóðhestar og fimmtíu og sjö hryssur. Eins og undanfarin ár virðist sem Sörlasýningin leggi línurnar, en þar eru oftast sýnd flest hæst dæmdu hrossin.

Fimm vetra flokkur hryssna er áberandi stærstur, telur þrjátíu hryssur. Sem sennilega er afleiðing af hestapestinni í fyrra, en þá voru færri 4 vetra hryssur sýndar en venjulega.

Það vekur hins vegar athygli að stóðhestar eru flestir í elsta flokki, eða átján. Ekki er þó mikill munur á, því í sex vetra flokki eru sautján hestar. Skýringin er þó að hluta sú að knapar eru að vinna tíma með ungu hestana og draga að sýna þá eins lengi og stætt er á. Í 5 vetra flokki eru fjórtán hestar komnir inn á Landsmót og í 4 vetra flokki fimmtán hestar.

Hæst dæmdu hross í hverjum flokki eins og staðan er núna eru:

4v Sjóður frá Kirkjubæ, 8,28, F: Sær Bakkakoti M: Þyrnirós Kirkjubæ.

4v Úlfhildur frá Blesastöðum 1a, 8,14 F: Krákur Blesastöðum 1a M: Kata Haga

5v Spuni frá Vesturkoti, 8,66 F: Álfasteinn Selfossi M: Stelpa Meðalfelli

5v Kolka frá Hákoti, 8,46 F: Íkon Hákoti M: Frá Hákoti

6v Konsert frá Korpu, 8,52 F: Sær Bakkakoti M: Hátíð Hellu

6v Ronja Hlemmiskeiði 3, 8,47 F: Krákur Blesastöðum 1a M: Kjarnorka Hlemmiskeiði 3

7v Kiljan frá Steinnesi, 8,71 F: Klettur Hvammi M: Kylja Steinnesi

7v Von frá Þóroddsstöðum, 8,33 F: Þóroddur Þóroddsstöðum M: Dama Þóroddsstöðum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link