Ómur í allri sinni dýrð
Ómur frá Kvistum kemur fram á Stóðhestadegi Eiðfaxa.
Ómur er óneitanlega stórstjarna meðal stóðhesta, hefur sannað sig bæði á kynbótabraut og keppnisvelli. Á landsmóti 2008 varð hann efstur í flokki 5 vetra stóðhesta með aðaleinkunnina 8,61. Fyrir sköpulag hefur Ómur hlotið 8,24 og fyrir hæfileika 8,85 þar af 9,5 fyrir vilja og geðslag og fyrir sitt svifmikla og örugga skeið. Hann var svo ótvíræður sigurvegari A-flokks gæðinga á síðastliðnu landsmóti, leiddi keppnina frá forkeppni og hlaut 8,98 í lokaeinkunn A-úrslita.
Ómur er undan Víglundi frá Vestra-Fíflholti sem er undan Ófeigi frá Flugumýri og fyrstu verðlauna hryssunni Orku frá Hvammi undan Otri frá Sauðárkróki og Löpp frá Hvammi.
Ómur hefur ekki verið lagður á skeið síðan í Skagafirði sl. sumar og geta því gefst hestamönnum þar tækifæri að líta á garpinn og sjá hvernig hann kemur undan vetri.
Upplýsingar um Óm veitir Kristjón L. Kristjánsson í síma 894-1298 eða í gegnum netfangið [email protected]
Stóðhestadagur Eiðfaxa fer fram á félagssvæði hestamannnafélagsins Sleipnis á Brávöllum á Selfossi á laugardaginn kemur, 28. apríl, og hefst hann kl. 14.
Hátíðin er hugsuð sem vettvangur til að kynna marga af bestu stóðhestum landsins fyrir áhugasömum ræktendum.
Auk kynninga og sýninga á ungum og upprennandi og öðrum þekktari stóðhestum verður boðið upp á kennslusýningu með Þorvaldi Árna Þorvaldssyni reiðkennara í reiðhöll Sleipnis. Þá verða Gári frá Auðsholtshjáleigu, Víðir frá Prestsbakka og Lukku-Láki frá Stóra-Vatnsgarði til sýnis inn í reiðhöll félagsins og geta gestir og gangandi virt þessa myndargripi fyrir sér.
Stóðhestadagurinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH