Úrtökunni lokið

  • 30. janúar 2014
  • Fréttir
Eiðfaxi Image

Hörður Óli Sæmundarson vann sér inn þátttökurétt í Meistaradeild Norðurlands. Hann verður í liðið Hrímnis.

Liðaskipan Meistaradeildar Norðurlands að taka á sig mynd

Úrtakan fyrir Meistaradeild Norðurlands 2014 fór fram í gær og unnu fjórir knapar sér réttindi til að keppa með Meistaradeild Norðurlands í vetur. Það voru þau Sölvi Sigurðsson, Hörður Óli Sæmundsson, Arnar Bjarki Sigurðsson og Hlín Mainka Jóhannesdóttir. Jóhann Magnússon og Baldvin Ari Guðlaugsson munu einnig taka þátt í Meistaradeild Norðurlands en þeir höfðu þegar unnið sér þátttökurétt með frammistöðu sinni veturinn 2013.

Úrslit voru eftirfarandi;
1. Sölvi Sigurðarson – 6,48
2. Hörður Óli Sæmundsson – 6,32
3. Arnar Bjarki Sigurðarson – 6,00
4. Hlín Christiane – 5,58
5. Sveinn Brynjar – 5,17

Upplýsingar um liðin og liðaskipan, eins og það liggur fyrir í dag, samkvæmt heimildum Eiðfaxa

Lækjamót – Ísólfur líndal Þórisson – Vigdís Gunnarsdóttir – Sölvi Sigurðsson

Weierholz –  Bjarni Jónasson – Sigvaldi Guðmundsson – Jóhann Magnússon

Björg – Fákasport – Viðar Bragason – Þorbjörn H. Matthíasson – Hlín Mainka Jóhannesdóttir

Hrímnir – Þórarinn Eymundsson – Líney María Hjálmarsdóttir – Hörður Óli Sæmundarson

Lið Mette Mannseth Þúfum – Mette Mannseth – Gísli Gíslason  – Arnar Bjarki Sigurðsson

Top Reiter – Syðra Skörðugil – Elvar E. Einarsson – Tryggvi Björnsson – Baldvin Ari Guðlaugsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link