KB-Mótaröð 2012
Mótanefnd Faxa og Skugga kom saman nú á dögunum til að ákveða mótastarf komandi vetrar. Ákveðið var að halda 3 mót í KB-mótaröðinni næstkomandi vetur, þetta er í þriðja sinn sem þessi mótaröð er haldin, mikil þátttaka hefur verið, hestakostur góður og keppendur komið víða að.
KB mótaröðin er opin íþróttakeppni, bæði liða og einstaklingskeppni.
Hörð barátta var á milli liðanna í fyrra og heyrst hefur að verið sé að rotta sig saman hér og þar í héraðinu til að búa til sigurlið fyrir næstu mótaröð. Í fyrra voru það Gæðakokkar sem höfðu betur á lokasprettinum og unnu verðskuldaðan sigur og gaman er að geta þess að það var hestakonan knáa Kolbrún Grétarsdóttir í Snæfelling sem var stigahæst allra keppenda.
Auk KB mótaraðar er fyrirhugað að halda, gæðingakeppni á beinni braut úti, ísmót þegar færi gefst og sölusýningu í janúar, en allt verður þetta auglýst síðar.
Hægt er að nálgast allar frekari upplýsingar um fyrirkomulag og reglur KB mótaraðarinnar á heimasíðu skugga, hmfskuggi.is og eins á facebook síðu KB mótaröðin.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Mótanefnd Faxa og Skugga
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH