Reiðmaðurinn að hefjast

  • 14. september 2011
  • Fréttir
Reiðmaðurinn að hefjast

Um næstu helgi hefst námskeiðsröðin Reiðmaðurinn, með verklegri helgi í Víðidal, á Akureyri og í Borgarnesi. 

Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands, í samvinnu við Landssamband hestamannafélaga og Félag hrossabænda, bauð fyrst upp á námið árið 2008. Námið er tvö ár að lengd og er byggt upp sem röð af helgarnámskeiðum þar sem tekið eru fyrir fjölbreyttir þættir í reiðmennsku, hrossarækt og almennu helstahaldi.
 
Námið hefur þróast jafnt og þétt með breyttum kennsluháttum og áherslum við þjálfun og útfærslu æfinga en í vetur verða 90 nemar í náminu í sjö hópum, þar af fara af stað tveir nýir sem hittast á Hellu og í Víðidal. Hópar á öðru ári koma saman á Flúðum, Hafnarfirði, Borgarnesi, Akureyri og á Fljótsdalshéraði. 
 
Í upphafi hverrar annar koma kennarar og umsjónarmenn Reiðmannsins saman og fara yfir helstu áherslur í kennslu vetrarins. Meðfylgjandi mynd var tekin á slíkum fundi sem fram fór í vikunni. Kennarar og starfsfólk í vetur verða F.v. á mynd: Gunnar Reynisson, Reynir Örn Pálmason, Ísleifur Jónasson, Erlingur Ingvarsson, Heimir Gunnarsson, Þorvaldur Kristjánsson og fyrir framan f.v. Ásdís Helga Bjarnadóttir, Reynir Aðalsteinsson og Anna s. Valdimarsdóttir.
 
Nánari upplýsingar um námið má nálgast hér.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link