Páskamót Geysis

  • 17. apríl 2011
  • Fréttir
Páskamót Geysis

Opið þrígangsmót Geysis verður haldið í Rangárhöllinni á Hellu skírdagskvöld, fimmtudagskvöldið 21. apríl kl. 20.

Keppt verður í barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki, opinn flokkur 2 og opinn flokkur 1. Sýna skal tölt á frjálsum hraða, brokk á frjálsum hraða og hægt stökk. Verðlaunin verða páskaegg eins og í fyrra.

Skráning er samdægurs á staðnum frá kl. 19 og kostar skráningin 1000 kr í barna- og unglingaflokk en 2000 kr í ungmenna- og fullorðinsflokkana.

Styrktaraðilar mótsins eru Hrossaræktarbúið Þúfa, Hrossaræktarbúið Grímsstaðir, Hrossaræktarbúið Strandarhjáleiga, Hrossaræktarbúið Skíðbakka III og SS á Hvolsvelli.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link