Fláki frá Blesastöðum í góðar tölur
Margt góðra hrossa kom fram á Sörlastöðum í dag. Þeirra á meðal var stóðhesturinn Fláki frá Blesastöðum, flugrúmur glæsihestur…
Fláki er glæsilegur hestur og töltið einkar gott, enda fékk hann 9,0 fyrir það. Aðeins fataðist honum flugið á skeiði og fékk fyrir það í einkunn 7,5. Þórður Þorgeirsson knapinn á Fláka hefur þó möguleika á að gera betur þar á yfirliti. Fláki er undan Blúndu frá Kílhrauni og Gígjari frá Auðsholtshjáleigu. Einkunnir Fláka:
Sköpulag: 7,5 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 7,5 – 8,5 – 9,5 = 8,17
Hæfileikar: 9,0 – 8,5 – 7,5 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 7,5 = 8,39
Aðaleinkunn: 8,30 Hægt tölt: 8,5 Hægt stökk: 7,5
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH