Gæðingamót Smára og Loga
Stefnir í gott mót, góð þáttaka er í öllum flokkum. Flottir vinningar í FERGUSONtöltinu og allt að verða klárt. Ráslistar birtast í dag, biðjum við þátttakendur að lesa yfir það og hafa samband ef um einhverjar villur er að ræða. Best er þá að hafa samband við Lilju i s. 8690387. Hægt verður að leggja kerrum við gamla völlinn, rétt áður en komið er að nýja vellinum og þar getur fólk einnig sett upp smá girðingar ef það vill. Ef einhverjum vantar frekari upplýsingar um það má hafa samband við Huldu Hrönn í s.8950096. Vanti einhverjum hesthús pláss yfir helgina er hægt að hafa samband við Ingvar í s. 8919597. Einnig er stórt gerði á svæðinu ef einhverjir vilja koma ríðandi.
Meðfylgjandi er dagskrá mótssins, birt með fyrirvara á breytingum.
DAGSKRÁ
LAUGARDAGUR
8.30 FORKEPPNI B-FLOKKUR GÆÐINGA
STUTT HLÉ
10.45 FORKEPPNI BARNAFLOKKUR
11.30 FORKEPPNI UNGLINGAFLOKKUR
MATARHLÉ
13.00 FORKEPPNI A-FLOKKUR
16.00 FORKEPPNI UNGMENNAFLOKKUR
KAFFIHLÉ
17.30 FORKEPPNI TÖLT FULLORÐNIR
19.00 MATARHLÉ
20.00 B-ÚRSLIT Í TÖLTI FULLORÐINNA
20.30 100 M. FLJÚGANDI SKEIÐ
21.15 A-ÚRSLIT Í TÖLTI FULLORÐINNA
SUNNUDAGUR
10.OO FORKEPPNI TÖLT UNGMENNAFLOKKUR
10.30 FORKEPPNI TÖLT UNGLINGAFLOKKUR
11.OO FORKEPPNI TÖLT BARNAFLOKKUR
MATARHLÉ
12.30 ÚRSLIT TÖLT UNMENNAFLOKKUR
13.00 ÚRSLIT TÖLT UNGLINGAFLOKKUR
13.30 ÚRSLIT TÖLT BARNAFLOKKUR
14.00 ÚRSLIT B-FLOKKUR GÆÐINGA
14.30 ÚRSLIT BARNAFLOKKUR
HLÉ
15. 15 ÚRSLIT UNGMENNAFLOKKUR
15.45 ÚRSLIT UNGLINGAFLOKKUR
16.15 ÚRSLIT A-FLOKKUR
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH