Meistardeildin sett – Myndir-
Meistardeildin í hestaíþróttum 2011 var sett á Nauthóli við Nauthólsvík í dag með kynningu á styrktaraðilum og keppnisliðum….
Að kynningum og undirritunum loknu riðu knapar deildarinnar á vaðið og sýndu valda gæðinga í Nauthólsvík við fögnuð áhorfenda og aðstandenda keppninnar.
Meistaradeildin er nú haldin í sjötta sinn og eru sjö lið skráð í keppnina en fjórir knapar eru í hverju liði. Alls eru því 28 knapar skráðir til leiks.
Meistardeildin er haldin á Ingólfshvoli í Ölfusi annað hvert fimmtudagskvöld og verður fyrsta mótið þann 27. janúar nk. en þá verður keppt í fjórgangi. Alls verður keppt í sjö greinum en smalinn (hraðfimi) verið tekin út í ár vegna endurskoðunar á keppnisgreininni.
Markmið deildarinnar er að standa vörð um velferð íslenska hestsins og auka umfjöllun í fjölmiðlum en sú nýlunda verður á miðlun meistaradeildarinnar í ár að keppnin verður sýnd í beinni útsendingu á Sport TV.
Meðfylgjandi eru myndir frá setningu Meistaradeildarinnar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH