Herrakvöld Fáks
Viljum minna alla alvöru hestamenn og aðra skemmtilega menn á að miðasala á Herrakvöld Fáks er í fullum gangi og hægt er að kaupa miða í Skalla og Reiðhöllinni (sennilega verða ekki seldir miðar við innganginn því það stefnir í að það verðiuppselt). Frítt inn til kl. 23:30 fyrir dömur og mun diskótekarinn Bjarni töfra sjá um að halda uppi stuðinu á dansgólfinu fram eftir nóttu.
Logi Bergmann verður veislustjóri og ræðumaður og er Hjörtur búinn að lauma að honum nokkrum gullkornum svo það verður skotið á alla (nema formanninn). Sögu- og landsnámshestamaðurinn Elli Sig mun láta vaða á súðum að sinni valkunnu snilld, sögur sem sagður eru sannar en ekki þola dagsbirtuna.
Einnig er boðið upp á eitt glæsilegasta villibráðarhlaðborð landsins, hestamálverk eftir Bjarna Þór og Sigurlínu í Fellskoti verða boðin upp, folatollar, happadrætti með ótrúlegum vinningsmöguleikum með vinningum að verðmæti 1 milljón í boði. Markmiðið með Herrakvöldinu er að safna fyrir snjótönn til að ryðja reiðvegina okkar svo allir geti riðið út með bros á vör.
Miðaverða aðeins kr. 7.500 .
Allir skemmtilegir hestamenn taka daginn frá og mæta laugardagskvöldið 12. október nk. Miðasala í Skalla (koma með 7.500 kall í peningum og málið dautt) og Reiðhöllinni.
Virðulegur klæðnaður skilyrði.
Margareterhof er selt
Átta hlutu gullmerki LH
Suðurlandsdeildin áfram á EiðfaxaTV
Heim í hlað – Ný þáttaröð á EiðfaxaTV