Nokkur pláss laus
Hryssur hjá stóðhestinum Vökli frá Leirubakka verða sónarskoðaðar í dag og verður haft samband við eigendur þeirra hryssa sem þegar eru fylfullar. Þá verður einnig tekið á móti nýjum hryssum og eru nokkur pláss laus hjá hestinum.
Vökull frá Leirubakka er fjögra vetra og hlaut fyrstu verðlaun á kynbótasýningu í vor; 8.22 fyrir sköpulag og 8.27 fyrir hæfileika og 8.25 í aðaleinkunn.Hann er hæst dæmdi íslenski 4ra vetra stóðhesturinn í heiminum það sem af er ári 2015.
Vökull er undan fyrstu verðlaunahryssunni Emblu frá Árbakka sem er móðir margra kynbóta- og keppnishrossa. Faðir Vökuls er svo Héðinn frá Feti, sem er m.a. með 8.80 í einkunn fyrir hæfileika.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH