Síðasta keppni KB mótaraðar
Frá verðlaunaafhendingu í KB-mótaröðinni.
Síðasta mót KB mótaraðarinnar verður haldið laugardaginn 18. apríl n.k. í Faxaborg. Keppt verður í fimmgangi og tölti og hefst keppni kl. 10.
„Mótið hefst á forkeppni í tölti T3 (þrír saman í holli) – Barnaflokkur – Unglingaflokkur – 2. flokkur
Forkeppni í fimmgangi F2 (tveir saman í holli) – Ungmennaflokkur – 1. flokkur – Opinn flokkur.
Úrslit hefjast svo að lokinni forkeppni og verða í sömu röð og í forkeppni.
Skráningargjöld eru kr. 2.500.- í öllum flokkum nema barna – og unglingaflokkum en þar eru þau 1.000.-
Skráningar fara að vanda fram í skráningakerfi Sportfengs (sportfengur.com). Mótshaldari er Skuggi og síðan rekur ferlið sig nokkuð auðveldlega. Í þeim tilfellum sem vandræði koma upp þá má senda upplýsingar (kennitala knapa, IS númer hests, flokkur og hönd ) á netfangið [email protected] eða hringja í síma 898-4569. Allir hestar verða að vera skráðir í World-Feng og allir keppendur skráðir í hestamannafélag. Skráning hefst laugardaginn 11. apríl og lýkur miðvikudaginn 15. apríl kl. 24. Alls ekki draga skráningu fram á síðustu stundu.
Ath: Keppendum verður ekki bætt inn á skrá eftir að 1. útgáfa ráslista kemur út nema um sannanleg mistök sé að ræða.“
Þetta kemur fram í tilkynning frá mótanefnd Faxa og Skugga.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH