Jóhann og Daníel sigra tölt og fimmgang á WorldTölt2013

  • 23. febrúar 2013
  • Fréttir
Jóhann og Daníel sigra tölt og fimmgang á WorldTölt2013

Íslendingarnir Jóhann Skúlason og Daníel Jónsson sigruðu með yfirburðum í tölti og fimmgangi á WorldTölt mótinu í Óðinsvéum. Jóhann fékk einnig sérstaka viðurkenningu fyrir íþróttamannlega framkomu og reiðmennsku á mótinu.

JENS EINARSSON

Jóhann var með tvö efstu hrossin í töltinu eftir forkeppni, stóðhestinn Hnokka frá Fellskoti í fyrsta sætinu og Snugg fra Grundet Hus í öðru. Hann valdi Hnokka í úrslitin og sigraði þau með yfirburðum. Það þarf varla að taka fram að Jóhann varð heimsmeistari í tölti á Hnokka í Austurríki 2011.

Daníel Jónsson stóð efstur eftir forkeppni í fimmgangi og stóðhestinum Oliver frá Kvistum. Hann var úrslitin af öryggi með 7,64, en knapi í öðru sæti, Josefin Birkebro á Kjarna frá Wallberg var með 7,10. 

Oliver er án efa eitt mesta hestagull sem selt hefur verið úr landi og mikil eftirsjá í honum. Hesturinn er bæði fagur og hæfileikaríkur, mjög vel ættaður. Daníel hefur þjálfað hestinn í vetur. Hann hefur verið með annan fótinn í Svíþjóð og verður það eitthvað áfram en rekur þó áfram tamningastöð sína á Hellu.

Eitt er víst af þessir knapar og hestar verða báðir í íslenska landsliðinu á HM2013 þá eru ekki alveg í augsýn þeir knapar og hestar sem koma til með að fara upp fyrir þá í tölti og fimmgangi.

Úrslit mótsins má sjá HÉR.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link