Frá hrossaræktarráðunauti varðandi kynbótamat og afkvæmahesta-
Nýtt kynbótamat hefur nú litið dagsins ljós og hefur verið fært í WorldFeng. Allnokkrar breytingar hafa orðið á matinu frá síðustu keyrslu, það ætti í sjálfu sér ekki að koma á óvart miðað við þann mikla fjölda hrossa sem sýndur var á vorsýningum. Margir hafa beðið spenntir eftir að sjá hvernig þeir hestar koma út sem mögulega gætu komið til afkvæmaverðlauna á landsmóti. Niðurstaðan er eftirfarandi:
Möguleg heiðursverðlaun:
Gári, Auðsholtshjáleigu 128 stig – 51 afkvæmi
Markús, Langholtsparti 122 stig – 58 afkvæmi
Aron, Strandarhöfði 121 stig – 95 afkvæmi
Hágangur, Narfastöðum 121 stig – 53 afkvæmi
Adam, Ásmundarstöðum 120 stig – 89 afkvæmi
Möguleg fyrstu verðlaun:
Arður, Brautarholti 128 stig – 16 afkvæmi
Álfur, Selfossi 126 stig – 29 afkvæmi
Blær, Torfunesi 125 stig – 19 afkvæmi
Stáli, Kjarri 125 stig – 18 afkvæmi
Vilmundur, Feti 124 stig – 20 afkvæmi
Krákur, Blesastöðum 123 stig – 20 afkvæmi
Gígjar, Auðsholtshjáleigu 121 stig – 31 afkvæmi
Sólon, Skáney 121 stig – 19 afkvæmi
Þóroddur, Þóroddsstöðum 120 stig – 48 afkvæmi
Þristur, Feti 119 stig – 45 afkvæmi
Kjarni, Þjóðólfshaga 118 stig – 18 afkvæmi
Ekki er vitað á þessari stundu hvort allir þessir hestar muni mæta með afkvæmahóp á landsmót að þessu sinni. Vegna undirbúnings vil ég eindregið biðja um að eigendur hestanna staðfesti við mig hið fyrsta hvort þeir ætla að mæta eður ei.
Með kveðju,
Guðlaugur V. Antonsson,
Hrossaræktarráðunautur BÍ.
Sími: 892-0619
Netpóstfang: [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH