Kolka frá Hákoti – video
Kolka frá Hákoti fékk hæstu aðaleinkunn, 8,46, í flokki 5 vetra hryssa á Héraðssýningunni í Víðidal.
Hún fékk 8,39 fyrir sköpulag og 8,50 fyrir hæfileika. Þar af fékk hún einkunnina 9 fyrir brokk, geðslag og samræmi og 9,5 fyrir bak og lend. Sýnandi Kolku var Hrefna María Ómarsdóttir, sem er jafnframt annar eigandi hryssunnar ásamt móður sinni, Rósu Valdimarsdóttur.
Kolka er undan Íkoni frá Hákoti og Þorradótturinni Frá frá Hákoti.
Frá var m.a. sýnd á Landsmóti 2000 og hlaut 8,19 í dómi. Annað afkvæmi Fráar, Sæfari frá Hákoti hlaut einnig glæsilega einkunn á kynbótasýningu í Þýskalandi á dögunum, 8,6 í aðaleinkunn þar af 8,75 fyrir hæfileika.
Íkon er undan Töfra frá Kjartansstöðum og Bellu frá Kirkjubæ sem var efst 4 vetra hryssa á Landsmóti 1998.
Meðfylgjandi er myndskeið af Kolku frá yfirlitssýningu á miðvikudag.
IS2006286428 Kolka frá Hákoti
Örmerki: 968000001802023
Litur: 2700 Brúnn/dökk/sv. einlitt
Ræktandi: Halldóra Hafsteinsdóttir, Markús Ársælsson
Eigandi: Hrefna María Ómarsdóttir, Rósa Valdimarsdóttir
F.: IS2002186435 Íkon frá Hákoti
Ff.: IS1996187336 Töfri frá Kjartansstöðum
Fm.: IS1994286104 Bella frá Kirkjubæ
M.: IS1995286428 Frá frá Hákoti
Mf.: IS1989184551 Þorri frá Þúfu
Mm.: IS1990286414 Feykja frá Hala
FORSKOÐUNARDÓMUR
Héraðssýning í Víðidal
Mál (cm): 142 – 139 – 64 – 144 – 28,0 – 18,5
Hófa mál: V.fr.: 9,0 – V.a.: 8,5
Sköpulag: 8,0 – 8,5 – 9,5 – 9,0 – 7,5 – 8,5 – 8,0 – 8,0 = 8,39
Hæfileikar: 8,5 – 9,0 – 8,5 – 8,0 – 9,0 – 8,5 – 7,0 = 8,50
Aðaleinkunn: 8,46 Hægt tölt: 8,0 Hægt stökk: 7,5
Sýnandi: Hrefna María Ómarsdóttir
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH