Gústaf Ásgeir Hinriksson efstur í fimmgangi unglinga
Gústaf Ásgeir Hinriksson leiðir eftir forkeppni í fimmgangi unglinga á Reykjavíkurmeistaramótinu sem fer nú fram í Víðidal. Hann hlaut 5,93 í einkunn. Rúna Tómasdóttir er önnur á Gríð frá Kirkjubæ og Bjarki Freyr Arngrímsson á Gými frá Syðri-Löngumýri er þriðji.
Dagskrá Reykjavíkurmótsins heldur áfram frameftir kvöldi, en nú stendur yfir keppni og er keppni í fimmgangi ungmenna að ljúka. Keppni í fjórgangi unglinga hefst kl. 17.05 og í kvöld fer fram forkeppni í fjórgangi ungmenna.
Úrslit forkeppni í fimmgangi unglinga urðu eftirfarandi:
1 Gústaf Ásgeir Hinriksson / Fálki frá Tjarnarlandi 5,93
2 Rúna Tómasdóttir / Gríður frá Kirkjubæ 5,20
3 Bjarki Freyr Arngrímsson / Gýmir frá Syðri-Löngumýri 4,97
4 Valdís Björk Guðmundsdóttir / Vestfjörð frá Fremri-Hvestu 4,73
5 Birgitta Bjarnadóttir / Otti frá Skarði 4,70
6 Rakel Jónsdóttir / Dagga frá Reykhólum 4,57
7 Andri Ingason / Vafi frá Breiðabólsstað 4,33
8 Birta Ingadóttir / Glampi frá Hömrum II 4,23
9 Hinrik Ragnar Helgason / Haddi frá Akureyri 4,07
10 Harpa Sigríður Bjarnadóttir / Mammon frá Stóradal 4,03
11 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir / Neisti frá Litla-Moshvoli 3,90
12-14 Súsanna Katarína Guðmundsdóttir / Garpur frá Torfastöðum II 3,87
12-14 Arnór Dan Kristinsson / Spilda frá Hnjúkahlíð 3,87
12-14 Nína María Hauksdóttir / Mökkur frá Flugumýri 3,87
15 Jóhanna Margrét Snorradóttir / Hnokki frá Syðra-Vallholti 3,67
16 Gabríel Óli Ólafsson / Vindur frá Hafnarfirði 2,73
17-18 Gústaf Ásgeir Hinriksson / Léttir frá Efri-Rauðalæk 0,00
17-18 Konráð Valur Sveinsson / Tralli frá Kjartansstöðum 0,00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH