Hæstu kynbótadómar ársins-
Stórbrotin hæfileikahross komu fram á kynbótasýningum ársins. Þrettán hross hlutu 8,80 eða hærra fyrir kosti á árinu á sýningum um allan heim. Spuni frá Vesturkoti er hæst dæmda kynbótahross sögunnar með 8,92 í aðaleinkunn sem hann hlaut á Landsmótinu á Vindheimamelum í sumar en þá fékk hann 9,25 fyrir kosti sem er hæsta hæfileikadómur sem hross hefur fengið. Sló hann þar við einkunninni 9,23 sem Rauðhetta frá Kirkjubæ hlaut á Landsmótinu á Gaddstaðaflötum 1994. En auk Spuna komust tvö hross í hóp tíu hæst dæmdu kynbótahrossa fyrir kosti, þau Þóra frá Prestbæ sem hlaut hæst 9,08 og Kiljan frá Steinnesi sem fékk 9,07.
Hæstu dómar fyrir kosti á Íslandi 2011
1.
IS2006187114 Spuni frá Vesturkoti
F: Álfasteinn frá Selfossi
M: Stelpa frá Meðalfelli
Landsmót 2011 – Vindheimamelar
Sýnandi: Þórður Þorgeirsson
Tölt 9
Brokk 9
Skeið 10
Stökk 8.5
Vilji og geðslag 10
Fegurð í reið 9
Fet 8.5
Hæfileikar 9.25
Hægt tölt 8
Hægt stökk 8
2.
IS2003201166 Þóra frá Prestsbæ
F: Orri frá Þúfu
M: Þoka frá Hólum
Landsmót 2011 – Vindheimamelar
Sýnandi: Þórarinn Eymundsson
Tölt 8.5
Brokk 9.5
Skeið 10
Stökk 8.5
Vilji og geðslag 9.5
Fegurð í reið 9
Fet 8
Hæfileikar 9.08
Hægt tölt 8.5
Hægt stökk 8.5
3.
IS2004156286 Kiljan frá Steinnesi
F: Klettur frá Hvammi
M: Kylja frá Steinnesi
Landsmót 2011 – Vindheimamelar
Sýnandi: Þorvaldur Árni Þorvaldsson
Tölt 9
Brokk 9
Skeið 9.5
Stökk 8.5
Vilji og geðslag 9.5
Fegurð í reið 9.5
Fet 7
Hæfileikar 9.07
Hægt tölt 9
Hægt stökk 8
4.
IS2004187401 Frakkur frá Langholti
F: Vilmundur frá Feti
M: Spá frá Akureyri
Landsmót 2011 – Vindheimamelar
Sýnandi: Erlingur Erlingsson
Tölt 9.5
Brokk 9
Skeið 9
Stökk 8.5
Vilji og geðslag 9.5
Fegurð í reið 9
Fet 7
Hæfileikar 9.03
Hægt tölt 9
Hægt stökk 7.5
5.
IS2003186669 Máttur frá Leirubakka
F: Keilir frá Miðsitju
M: Hrafnkatla L52 frá Leirubakka
Landsmót 2011 – Vindheimamelar
Sýnandi: Sigurður Vignir Matthíasson
Tölt 9
Brokk 9
Skeið 8.5
Stökk 8.5
Vilji og geðslag 9
Fegurð í reið 9
Fet 8
Hæfileikar 8.81
Hægt tölt 8.5
Hægt stökk 7.5
Hæstu hæfileikadómar á sýningum erlendis 2011
1.
DK2003106270 Pá fra Eyfjörd
F: Þorri frá Þúfu
M: Engilbjört frá Kjarri
Dritteltreffen Nord auf Osterbyholz
Sýnandi: Agnar Snorri Stefánsson
Tölt 8.5
Brokk 8.5
Skeið 9.5
Stökk 8.5
Vilji og geðslag 9.5
Fegurð í reið 9
Fet 8.5
Hæfileikar 8.9
Hægt tölt 8.5
Hægt stökk 8.5
2.
IS2002136610 Glotti frá Sveinatungu
F: Gustur frá Hóli
M: Sonnetta frá Sveinatungu
Dritteltreffen Nord auf Osterbyholz
Sýnandi:Jakob Svavar Sigurðsson
Tölt 9
Brokk 9
Skeið 9.5
Stökk 8
Vilji og geðslag 9.5
Fegurð í reið 8.5
Fet 7.5
Hæfileikar 8.9
Hægt tölt 8.5
Hægt stökk 7
3.
DE2002134228 Teigur vom Kronshof
F: Otur frá Sauðárkróki
M: Næpa vom Kronshof
World Championships 2011 in St. Radegund
Sýnandi: Frauke Schenzel
Tölt 9
Brokk 8.5
Skeið 9
Stökk 8
Vilji og geðslag 9.5
Fegurð í reið 9
Fet 7.5
Hæfileikar 8.84
Hægt tölt 8.5
Hægt stökk 8
4.
SE2004103324 Mökkvi från Åleby
F: Hrafnfaxi frá Vestra-Geldingaholti
M: Hnáta frá Varmalæk
Wången
Sýnandi: Sigfus Sigfusson
Tölt 8.5
Brokk 8.5
Skeið 9.5
Stökk 8.5
Vilji og geðslag 9.5
Fegurð í reið 8.5
Fet 8.5
Hæfileikar 8.82
Hægt tölt 8
Hægt stökk 8
5.
SE2005203978 Meyla från Jemthagen
F: Blær frá Búðarhóli
M: Hrafndís frá Bakkakoti
Wången
Sýnandi: Gudmundur Einarsson
Tölt 9
Brokk 9
Skeið 8
Stökk 8.5
Vilji og geðslag 9.5
Fegurð í reið 9
Fet 8
Hæfileikar 8.8
Hægt tölt 9
Hægt stökk 8.5
Rýnt í einstaka þætti hæfileika
Tvö hross fengu einkunnina 10 fyrir tölt á árinu, Alfa frá Blesastöðum og Díva frá Álfhólum. Sextán hross hlutu 9,5 fyrir tölt. Jafnframt hlutu tvö hross 10 fyrir skeið, Þóra frá Prestsbæ og Spuni frá Vesturkoti, nítján hross hlutu 9,5. Sjö hross hlutu 9,5 fyrir brokk en ekkert hlaut 10. Ekkert hross hlaut heldur 10 fyrir stökk en þrjú fengu 9,5; Loki frá Selfossi, Orka frá Sauðá og Kapall frá Kálfholti. Spuni frá Vesturkoti og Díva frá Álfhólum hlutu 10 fyrir vilja og geðslag á árinu. Ekkert hross hefur nokkurn tímann hlotið 10 fyrir fegurð í reið en fimm hross hlutu 9,5 á árinu; Kiljan frá Steinnesi, Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum, Korgur frá Ingólfshvoli, Ísafold frá Kirkjubæ og Eldur frá Torfunesi. Sex hlutu 9,5 fyrir fet, átta hross hlutu 9,5 fyrir hægt tölt og fimm hross fengu 9,5 fyrir hægt stökk.
Til gamans er hér svo listi yfir hæst dæmdu hross sögunnar fyrir kosti
Hross/ Sýning/ár /Sköpulag/Kostir/Aðaleinkunn
1. IS2006187114 Spuni frá Vesturkoti Landsmót 2011 8,43 9,25 8,92
2. IS1979286102 Rauðhetta frá Kirkjubæ Landsmót 1994 8,4 9,23 8,81
3. IS1992125110 Ormur frá Dallandi Gunnarsholt 1999 7,9 9,19 8,54
4. IS2001257651 Lukka frá Stóra-Vatnsskarði Landsmót 2008 8,46 9,18 8,89
5. IS2003188277 Tenór frá Túnsbergi Sörlastaðir 2009 7,78 9,15 8,61
6. IS1998187002 Stáli frá Kjarri Landsmót 2006 8,26 9,09 8,76
7. IS1970165740 Náttfari frá Ytra-Dalsgerði Ekki skráð 8 9,08 8,54
8. IS2003201166 Þóra frá Prestsbæ Landsmót 2011 8,31 9,08 8,77
9. IS2004156286 Kiljan frá Steinnesi Landsmót 2011 8,35 9,07 8,78
10. IS1994166620 Huginn frá Haga I Víðidalur 2000 7,84 9,05 8,57
Sköpulagseinkunnir
Rétt er að líta einnig á sköpulagseinkunnir kynbótahrossa á árinu, en fjögur hross hlutu einkunnina 8,80 eða hærra í ár, tvö á Íslandi og tveir hestar erlendis. Áður höfðu aðeins þrjú hross hlotið svo háar einkunnir; Goði frá Þóroddsstöðum sem hlaut 9,02 árið 2008, Diva från Gategården sem hlaut þá sömu einkunn árið 2003 og Gári frá Auðsholtshjáleigu sem hlaut 8,91 á Landsmóti á Hellu árið 2004.
Hæstu dómar fyrir sköpulag á árinu 2011
1.
SE2003102230 Prins från Knutshyttan
F: Flipi från Österåker
M: Nótt från Knutshyttan
Wången
Höfuð 8.5
Háls/herðar/bógar 9.5
Bak og lend 8.5
Samræmi 9
Fótagerð 8.5
Réttleiki 8.5
Hófar 9
Prúðleiki 7.5
Sköpulag 8.88
2.
DK2006206298 Von fra Gultentorp
F: Stefnir frá Sandhólaferju
M: Fluga frá Bræðratungu
Herning 2
Höfuð 8.5
Háls/herðar/bógar 9.5
Bak og lend 8
Samræmi 9.5
Fótagerð 8.5
Réttleiki 8
Hófar 8.5
Prúðleiki 8.5
Sköpulag 8.86
3.
IS2005135026 Grandi frá Skipaskaga
F: Gári frá Auðsholtshjáleigu
M: Kvika frá Akranesi
Héraðssýning Sörlastöðum
Höfuð 8.5
Háls/herðar/bógar 9
Bak og lend 8
Samræmi 9
Fótagerð 9.5
Réttleiki 8
Hófar 9
Prúðleiki 7.5
Sköpulag 8.83
4.
IS2004258301 Þrift frá Hólum
F: Adam frá Ásmundarstöðum
M: Þrenna frá Hólum
Héraðssýning á Vindheimamelum
Höfuð 8.5
Háls/herðar/bógar 9.5
Bak og lend 8.5
Samræmi 9.5
Fótagerð 7.5
Réttleiki 8
Hófar 9
Prúðleiki 8
Sköpulag 8.81
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH