Mývatn Open 13.mars
Mývatn Open er um aðra helgi og hefst á laugardaginn 13.mars kl.10:30. Á föstudaginn 12.mars verður hópreið um vatnið og eftir kl.18:00 verður keppnisbrautin opin til skoðunar og æfinga.
Mývatn open – Hestar á ís 2010
Dagskrá
Föstudagur 12.mars
Hópreið um Mývatn kl. 15:30 – 18:00
Keppnisbraut opin til skoðunar kl. 18:00
Barkvöld í Selinu.
Laugardagur 13. mars
Kl. 10:30 Tölt B Ekkert aldurstakmark
Kl. 13:00 Tölt A
Stóðhestakeppni
Skeið
Verðlaunaafhending yfir kaffihlaðborði í Selinu
Kl. 19:30 Húsið opnar fyrir stemmingu kvöldsins,
videosýning frá afrekum dagsins á breiðtjaldi
Kl. 20:30 Hestamannahóf hefst – öllum opið.
Kl. 23:30 Kráarstemning fram á nótt
Kiddi spilar fyrir dansi, frítt inn.
Stóðhestakeppni- þar sem að alhliða og klárhestar etja kappi saman.
Riðnar verða þrjár ferðir fram og til baka(samtals 6.ferðir) Fyrsta ferð hægt tölt og milliferðartölt til baka. Önnur ferð brokk og yfirferð til baka og má þá knapi velja milli skeiðs og tölts. Þriðja ferðin er svo frjáls báðar leiðir , þar sem knapinn má sýna allt það besta sem hesturinn hefur uppá að bjóða.
Skráningar þurfa að berast í síðasta lagi fyrir kl. 23:55 Miðvikudagskvöldið 10.mars á netfangið [email protected] (Úlfar s. 8561173).
Upplýsingar um nafn, föður, móður, lit, aldur, eiganda og knapa þurfa að koma fram
(IS númer).
Skráningargjald er kr. 3.000,- og er borgað á staðnum í síðasta lagi klukkutíma áður en keppni hefst.
Sel-Hótel Mývatn býður upp á gistitilboð kr. 5.450,- á mann í tveggja manna herbergi og aukanótt 3.900,- á mann með morgunmat. Kr. 7.900,- í eins manns herbergi. Morgunmatur innifalinn.
Þriggja rétta glæsilegur kvöldverður og hestamannahóf á laugardagskvöldinu verð kr. 6.200,- á mann.
Hestamenn fjölmennum og höfum gaman saman!
Bókanir í s. 464 4164 eða [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH