Skráningarfrestur úrtöku „Þeir allra sterkustu“ rennur út í dag
Úrtaka fyrir ístöltið „Þeir allra sterkustu“ verður haldin sunnudaginn 20.mars kl. 20 í Skautahöllinni í Laugardal. Skráningafrestur í úrtöku rennur út í dag.
Átta efstu hestum í úrtöku verður boðið að taka þátt í Ístöltinu „Þeir allra sterkustu“ sem fer fram 2. apríl. Þar munu mæta til leiks glæsilegir töltarar og margir af fremstu knöpum landsins. Skráningargjaldið er 4.500 kr. 18 ára aldurstakmark. Skráning fer fram á heimasíðunni http://www.gustarar.is/. Athugið! Takmarkaður fjöldi knapa er í úrtökuna en hver knapi má mæta með tvo hesta í úrtöku.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH