Ísólfur startar með trukki
Rósberg Óttarsson skrifar:
Ísólfur Líndal á Kristófer frá Hjaltastaðahvammi sigraði glæsilega fjórganginn á fyrsta keppnisdegi Meistaradeildar Norðurlands í gærkvöldi. Sigurinn er enn sætari en ella því Ísólfur var sjöundi eftir forkeppnina og þurfti að keppa í B úrslitunum.
Þar var spennan mikil og svo fór að Ísólfur og Baldvin Ari á Senjor frá Syðri-Ey urðu jafnir með einkuninna 7,27 og tryggðu sér báðir sæti í A- úrslitum. Eftir forkeppnina stóð Ólafur Magnússon á gæðingnum Gáska frá Sveinsstöðum best að vígi en hann hlaut 7,10 í einkunn. Hann ásamt Sölva Sigurðssyni á Óða-Blesa frá Lundi, Bjarna Jónassyni á Roða frá Garði og Fanneyju Dögg Indriðadóttur á Gretti frá Grafarkoti tryggðu sér sæti í A- úrslitum.
A- úrslitin voru spennandi og veðjuðu flestir áhorfendur á að Ólafur á Gáska myndi hafa sigur eftir góða sýningu í forkeppninni. Það var hins vegar jöfn og góð sýning Ísólfs og Kristófers sem tryggði þeim sigurinn á meðan að Ólafur og Gáski náðu sér ekki á strik á fetinu og á stökkinu, sem kostaði þá sigurinn, þrátt fyrir frábært yfirferðar tölt. Ísólfur og Kristófer voru vel að sigrinum komnir.
Úrslit:
Ísólfur Líndal Þórisson – Kristófer frá Hjaltastaðahvammi 7,47
Ólafur Magnússon – Gáski frá Sveinsstöðum 7,40
Sölvi Sigurðsson – Óði- Blesi frá Lundi 7,37
Bjarni Jónasson – Roði frá Garði 7,23
Baldvin Ari Guðlaugsson – Senjor frá Syðri Ey 7,13
Fanney Dögg Indriðadóttir – Grettir frá Grafarkoti 7,0
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH