Röspum ekki vandann burt

  • 22. nóvember 2012
  • Fréttir
Sár í munni reiðhesta eru langoftast vegna síendurtekins þrýstings á sama munnsvæði, ekki vegna þess að tannbroddarnir særi holdið eða slímhúðina.

Fyrir fjórum árum komu tveir dýralæknar og sérfræðingar í tannheilsu hesta til landsins í boði Sigríðar Björnsdóttur, dýralæknis hrossasjúkdóma. Þeir héldu námskeið fyrir dýralækna og fyrirlestra um tannheilsu. Þeir komu sömu erinda til landsins á þessu ári.

Þetta eru þeir Torbjörn Lundström og Ove Wattle, sérfræðingar við Dýralæknaháskólann í Uppsölum í Svíþjóð. Þeir halda því fram að tannraspanir í reiðhrossum séu gagnlausar, í það minnsta gagnslitlar, til að koma í veg fyrir munnsár og vilja meina að rétt val á beisli og notkun þeirra hafi meira vægi heldur en tannröspun. Þeir segja einnig að tannraspanir geti valdið alvarlegum tannskemmdum sem í kjölfarið geti haft skaðleg áhrif á tannheilsu hesta.

 Þess má geta að Ove Wattle var kjörinn „dýralæknir ársins“ í Svíþjóð á þessu ári og Torbjörn, sem einnig er mannatannlæknir að mennt og starfaði sem slíkur í tíu ár, hefur tvisvar verið „Invited Speaker“ á BEVA Congress, sem er ein virðulegasta dýralæknaráðstefna í Evrópu og haldin er árlega.

Í blaðinu LH-Hestar, 5. tbl. 2008, birtist viðtal við Torbjörn um kenningar hans og hvernig komast megi hjá munnsárum með réttu vali á mélum og beisli. Viðtalið birtist hér með:

„Röspum ekki vandann burt

Íslenskir dýralæknar og hestamenn hafa í áratugi raspað tennur í hestum að óþörfu, í versta falli til skaða. Særindi í munni reiðhesta eru yfirleitt af öðrum orsökum. Ofröspun getur valdið tannskemmdum og tannpínu. Þetta segir sænski tannlæknirinn Torbjörn Lundström, sem er sérfræðingur í tönnum hesta.

Röspum ekki vandann burt
„Þú raspar ekki vandann burt,“ segir Torbjörn. „Tannbroddar eru yfirleitt komnir í sama horf eftir þrjá til fjóra mánuði eftir röspun. Sár í munni reiðhesta eru langoftast vegna síendurtekins þrýstings á sama munnsvæði, ekki vegna þess að tannbroddarnir særi holdið eða slímhúðina. Reiðmúlar þrýsta kinnum hestins að tönnunum þegar þeir gapa, oftast vegna þess að mélin valda þeim óþægindum. Sárin koma þó yfirleitt ekki eftir eitt skipti, heldur smám saman vegna þrýstings á sama svæði, aftur og aftur yfir lengri tíma. Sömu sögu er að segja um sár á tungu og í neðri gómi. Þau koma eftir síendurtekinn þrýsting frá mélum. Með því að skipta oft um beislabúnað og nota mél sem passa hverjum hesti má draga mjög úr þessum meiðslum.“

Hestar fá tannpínu
Torbjörn segir að til að forðast særindi í munni reiðhesta sé áríðandi að nota rétta lengd méla. Oft noti fólk of löng mél. Einnig gefi það góðan árangur að færa reiðmúlinn til í hvert skipti sem lagt er við hestinn. Eða að sleppa honum alveg annað slagið. Hann segir að of mikil röspun geti brotið niður varnir tannanna og valdið því að þær skemmast, líkt og í mönnum. Hestarnir geti þá fengið tannpínu síðar á ævinni. Hann segir að meðhöndlun tanna sé þó stundum nauðsynleg, meðal annars til að leiðrétta rangt bit. Um 70% íslenskra hrossa eru með undirbit á jöxlum, en aðeins 5% í flestum öðrum kynjum. Hann raspar hins vegar aldrei tennur með þeim hætti sem við eigum að venjast hér á landi; tannbrodda að utanverðu í efri gómi og að innanverðu í neðri gómi.
„Rannsóknir okkar sýna að tannröspun gefur engan árangur. Rétt val á beislabúnaði og rétt notkun skilar hins vegar miklum árangri,“ segir Torbjörn.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link