Hestadagar í Reykjavík hófust í morgun
Dagskrá „Hestadaga í Reykjavík“ hófst í morgun með hrossaræktarferð austur fyrir fjall þar sem heimsótt verða hrossaræktarbú ársins undanfarinna ára.
Á morgun, þriðjudag, verður svo farið á Vesturland þar sem starfsemi Landbúnaðarháskóla Íslands verður kynnt og fleira. Þeir sem hafa áhuga á að skella sér í þessa ferð geta skráð sig inn á heimasíðu Hestadaga í Reykjavík eða í s. 514-4030.
Miðvikudaginn 30. mars verður svo haldin kennslusýning í samstarfi við Félag Tamningamanna í reiðhöll Gusts og hefst hún kl. 20. Aðgangseyrir er 1.500 kr. en frítt fyrir félagsmenn FT.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH