Hvað á barnið að heita?

  • 10. janúar 2013
  • Fréttir
Eiðfaxi Image

Meirihluti atkvæða mun ráða valinu á nafni hins nýja hestamannafélags.

Hestamannafélagið Kjóavöllum heldur samkeppni um nafn á hið nýja félag sem varð til við samruna Andvara og Gusts

Stjórn Hestamannafélagsins Kjóavöllum hefur ákveðið að halda samkeppni um nafn á félagið, en núverandi nafn er vinnuheiti á nýju hestamannafélagi, sem varð til við samruna Andvara og Gusts. Öllum er heimil þátttaka í samkeppninni.

Tillögu-r um nafn þurfa að hafa borist fyrir 15. janúar 2013 á heimilsfangið:
Hestamannafélagið Kjóavöllum
Pósthólf 8413
128 Reykjavík

Ásamt tillögu að nafni á félagið og skýringum/rökstuðningi skal nafn og kennitala þátttakanda fylgja með í lokuðu umslagi.

Nafnanefnd félagsins mun fara yfir tillögurnar og velja úr þau nöfn sem kosið verður um á komandi aðalfundi félagsins. Meirihluta atkvæða aðalfundarins ræður endanlegu vali. Kosið verður milli tveggja nafna sem flest atkvæði hljóta fáist ekki hrein úrslit í fyrstu kosningu.

Hestavöruverslunin Hestar og Menn, Lynghálsi 5, gefur vinningshafanum glæsileg verðlaun eða vöruúttekt í versluninni fyrir 60 þúsund krónur. Dregið verður um vinningshafa ef fleiri en einn þátttakandi á tillögu að því nafni sem verður fyrir valinu.
Með bestu kveðju,
Stjórn Hestamannafélagsins Kjóavöllum

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link