Velferð hestsins er grundvöllur hestamennskunnar

  • 24. október 2014
  • Fréttir
Fræðsluvefur um munn hestsins

Fræðsluvefur um munn hestsins var formlega opnaður á Landsþingi LH 2014. 

Markmið vefsíðunnar er að gera aðgengilegt fræðsluefni um munn og tennur hestsins, beislisbúnað og notkun hans. Á síðunni má einnig finna umfjöllun um atferli hesta og þjálfun sem stuðlar að velferð þeirra og á efnið á erindi til allra sem nota íslenska hestinn til reiðar.

„Munnsærindi í íslenskum keppnishrossum eru undantekningalítið þrýstingssár sem rekja má til beislisbúnaðar og/eða stöðugs þrýsting frá taumtaki. Vandamál tengd tönnum geta þó verið undirliggjandi orsök, t.d. úlfstennur, brotnar tennur og bitgallar. Oft má sjá skemmdir á tönnum hjá hestum sem bíta í mél og dæmi eru um hesta með tannpínu af þeim sökum.“

Vefurinn er bæði á íslensku og ensku.

Að vefnum standa Sigríður Björnsdóttir dýralæknir hrossasjúkdóma hjá Matvælastofnun, Helga Thoroddsen reiðkennari og höfundur knapamerkjanna og Torbjörn Lundström tannlæknir og sérfræðingur í tönnum hesta.

Slóðin er www.mouthofthehorse.com.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link