Veisla framundan

  • 10. mars 2016
  • Fréttir
Veisla framundan í Samskipahöllinni í kvöld

 

 

Í dag verður boðið til sannkallaðrar veislu í Samskipahöllinni hjá Spretti en þá fer fram keppni í fimmgangi í Meistaradeildinni í hestaíþróttum. Enn er hægt að fá miða og fer miðasalan fram í Baldvini og Þorvaldi, Topreiter, Líflandi og við innganginn. Búast má við fjölmenni og því betra að tryggja sér miða í tíma.

En það verður ekki bara veisla á keppnisvellinum heldur er boðið upp á girnilegt hlaðborð líka. Húsið opnar kl. 17:30 og boðið verður uppá rjómalagaða súpu og nýbakað brauð. Lambalæri með ofnbökuðum kartöflum, sveppasósu og fjölbreyttu úrvali af meðlæti. Verð á hlaðborðinu er 2500 kr. Einnig verða í boði pizzur og samlokur með skinku og osti.

Það er því tilvalið að mæta snemma, fá sér gott að borða og koma sér vel fyrir í höllinni áður en spennandi keppni hefst.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link