Sigrún Ólafsdóttir endurkjörin formaður FT
Sigrún Ólafsdóttir, í miðið, var endurkjörin formaður FT á aðalfundi félagsins á föstudaginn. Rúna Einarsdóttir Zingsheim situr á hestinum.
Sigrún Ólafsdóttir var endurkjörin formaður Félags tamningamanna til tveggja ára á aðalfundi félagsins síðastliðinn föstudag. Ný inn í stjórn kom Camilla Petra Sigurðardóttir, í stað Þórdísar Önnu Gylfadóttur, sem gaf ekki kost á sér áfram.
Fjölbreytt starfsemi FT var rakin í skýrslu stjórnar á fundinum. En framundan eru líka ýmsir áhugaverðir viðburðir á vegum félagsins. Sá fyrsti laugardaginn 17. desember, þar sem þau Jóhann Rúnar Skúlason og Rúna Einarsdóttir-Zingsheim, munu halda fyrirlestra í Harðarbóli í Mosfellsbæ um þjálfun og uppbyggingu hrossa. Hefst samkoman klukkan 18.00.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH