Sólon og Þórey á Hrosshaga
Hjónin Sólon Morthens og Þórey Helgadóttir á Hrosshaga í Biskupstungum standa nú í ströngu, en þau eru að leggja lokhönd á nýtt hesthús, sem á að rúma 26 hross, ásamt reiðskemmu. Þar reka þau hestamiðstöð, og annast almenna þjónustu við hestamenn : Tamningar, þjálfun, járningar og kennslu. Sólon útskrifaðist sem reiðkennari frá Hólaskóla 2010, og hefur getið af sér gott orð fyrir vönduð vinnubrögð sem tamningamaður og hestaþjálfari. Af hrossum sem verða undir hnakk hjá kappanum í vetur er meðal annarra gæðingurinn Frægur frá flekkudal, en þeir félagar hafa náð góðum árangri undanfarin misseri, unnu til dæmis fimmgang meistara á Suðurlandsmóti 2010 og náðu viku seinna fjórða sæti á Íslandsmóti í sömu grein.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH