Stefnir efstur með 5,70
Stefnir Guðmundsson er efstur í fimmgangi 2. flokki á henni Drottningu frá Garðabæ með einkunnina 5,70. Á eftir Stefni er Saga Steinþórsdóttir á henni Grósku frá Kjarnholtum með einkunnina 5,10 og í þriðja sæti er Ingeborg Björk Steinsdóttir á Glódísi frá Akurgerði með einkunnina 5,07.
Þá er Suðurlandsmótinu lokið í dag en það heldur áfram á morgun, fimmtudag. Byrjað verður á fjórgangi 1. flokki kl. 8:00 í fyrramálið. Fyrsti knapi í braut er Árni Björn Pálsson á Öfjörð frá Litlu-Reykjum.
Niðurstöður úr forkeppni í fimmgangi 2. flokk:
Sæti Keppandi
1 Stefnir Guðmundsson / Drottning frá Garðabæ 5,70
2 Saga Steinþórsdóttir / Gróska frá Kjarnholtum I 5,10
3 Ingeborg Björk Steinsdóttir / Glódís frá Akurgerði 5,07
4 Sara Pesenacker / Hnokki frá Skíðbakka III 4,80
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH