Grafarkot ræktunarbú ársins í V-Hún.
Uppskeruhátíð Hrossaræktarsamtaka Vestur – Húnavatnssýslu og hestamannafélagsins Þyts var haldið á Hvammstanga á laugardagskvöldið.
Veittar voru viðurkenningar fyrir þrjú stigahæstu hross í öllum flokkum og eigendur hæst dæmdu hryssu og stóðhests á árinu innan Hrossaræktarsamtakana fengu farandbikara.
Stigahæstu knapar hlutu viðurkenningar fyrir afrek . Knapi ársins 2011 var kjörinn Tryggvi Björnsson. Stigahæsti knapi ársins í 2. flokk var Vigdís Gunnarsdóttir og Jónína Lilja Pálmadóttir hlaut viðurkenningu fyrir að vera stigahæsti knapi í ungmennaflokki.
Grafarkot var valið ræktunarbú ársins en hryssan úr ræktun Grafarkots, Skinna, er einnig hæst dæmda hryssan, hlaut í aðaleinkunn 8,33 þar af 9,0 fyrir skeið og vilja og geðslag. Hinn 5 vetra gamli Eldfari frá Stóru Ásgeirsá er hins vegar hæst dæmdi stóðhestur samtakana í ár. Eldfari hlaut 8,33 í aðaleinkunn þar af 9,0 fyrir hófa og vilja og geðslag, 9,5 fyrir skeið.
Fyrr um daginn fór fram Uppskeruhátíð Barna- og Unglinga hjá hestamannafélaginu Þyt þar sem farið var yfir fjölbreytta dagskrá sl. starfsveturs. Knapar ársins voru verðlaunaðir og hlaut Viktor Jóhannes Kristófersson nafngiftina í barnaflokki og Helga Rún Jóhannsdóttir hlaut viðurkenninguna í unglingaflokki.
Myndir frá hátíðinni má nálgast á heimasíðu hestamannafélagsins Þyts.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH