Opið íþróttamót Dreyra og Harðar

  • 14. ágúst 2011
  • Fréttir
Opið íþróttamót Dreyra og Harðar

Árlegt íþróttamót Dreyra er nú haldið í sameiningu við Harðarmenn dagana 18.-21. ágúst. Mótið verður haldið í Mosfellsbæ.

Keppt er í Opnum flokk, áhugamannaflokk, ungmennaflokk, unglingaflokk og barnaflokk í öllum hefðbundum keppnisgreinum ef næg þátttaka verður.

Tekið verður á móti skráningum mánudagskvöldið 15.ágúst milli klukkan 20:00 og 22:00 í síma: 868-7606 (Karen), 663-4574 (Ása), 860-9794 (Svandís) og 867-1668 (Kristín).

Einnig er hægt að senda skráningu á  [email protected].

Skráningargjald á hverja keppnisgrein er 3500 krónur.

42 þúsund krónu þak á hverja fjölskyldu. (Foreldrar + börn).

Það sem þarf að koma fram þegar skráð er:

Nafn og kennitala knapa.

IS númer og nafn hests.

Flokkur, keppnisgrein og upp á hvaða hönd á að keppa.

Símanúmer knapa.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link