Hera frá Árbæ efst

  • 9. ágúst 2012
  • Fréttir
Hera frá Árbæ efst

57 hross voru sýnd á kynbótasýningunni á Mið-Fossum en 50 hlutu fullnaðardóm. Efst var hryssan Hera frá Árbæ með aðaleinkunn upp á 8,40, 8,34 fyrir sköpulag og 8,43 fyrir hæfileika. Sýnandi var Guðmundur F. Björgvinsson. Hera er undan Þóroddi frá Þóroddsstöðum og henni Hrefnu frá Árbæ en þetta er ekki fyrsta afkvæmið hennar Hrefnu sem fer í fyrstu verðlaun en fyrir á hún þrjú fyrstu verðlauna afkvæmi.

Það gekk mjög vel hjá Jakobi S. Sigurðssyni en hann sýndi níu hross í fyrstu verðlaun. Jakob sýndi m.a. Straum frá Skrúð 4 vetra stóðhest undan Glotta frá Sveinatungu og Söndru frá Skrúð. Straumur var annar á sýningunni en hann hlaut 8,33 í aðaleinkunn, 8,41 fyrir hæfileika og 8,21 fyrir sköpulag, sem verður að teljast nokkuð gott fyrir 4 vetra hest.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link