Ellefu spennandi stóðhestar í notkun á Vesturlandi
Opnað hefur verið fyrir pantanir undir stóðhesta sem verða á vegum Hrossaræktarsambands Vesturlands í sumar.
Alls verða 11 stóðhestar á vegum sambandsins á Vesturlandi en þeir eru Darri frá Hjarðartúni, Sólon frá Skáney, Gammur frá Steinnesi, Eldur frá Torfunesi, Kvistur frá Skagaströnd, Ægir frá Efri-Hrepp, Þröstur frá Hvammi, Dynur frá Dísarstöðum 2, Klettur frá Hvammi, NN frá Blesastöðum 1A (Krákssonur) og Ás frá Ármóti. Dynur frá Hvammi verður á Suðurlandi.
Tekið er við pöntunum á þar til gerðu eyðublaði á vefsíðu Hrossaræktarsambandsins.
Vakin er athygli á því að félagsmenn deilda sambandsins ganga fyrir til 20. mars. Einnig að allar hryssur sem koma undir hestana þurfa að vera einstaklingsmerktar og er skýrsluhald skilyrði. Þá ber að athuga að ef greiðandi folatolls er annar en umráðamaður hryssu skal nafn hans og kennitala einnig koma fram á skráningareyðublaðinu.
Sjá nánar á www.hrossvest.is.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH