Rauðskeggur verður í Kjarnholtum
Rauðskeggur frá Kjarnholtum verður til afnota að Kjarnholtum I, allt sumarið 2015, fyrir hryssur. Auðvelt hefur verið að bæta inná hann hryssum, ef einhver hefur áhuga á því.
Rauðskeggur er 4 vetra stóðhestur, sammæðra Kolskeggi frá Kjarnholtum I og undan Kiljan frá Steinnesi. Rauðskeggur fór i dóm í Víðidal í Reykjavik og hlaut í aðaleinkunn 8,16, fyrir byggingu hlaut hann 8,42 og fyrir hæfileika 7,98. Hæst hlaut Rauðskeggur 9 fyrir háls og herðar, samræmi og stökk.
Upplýsingar gefa: Magnús í símum 4868932, 8669711 og Guðný í síma 8956507, eða á netfangi: kjarnholt(hjá)centrum.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH