Hnykkingarnámskeið með Dr Susanne Braun
Hnykkingarnámskeið með Dr Susanne Braun verður haldið á Sörlastöðum 28. febrúar. Susanne er fagdýralæknir fyrir hestasjúkdóma og IVCA kírópraktor. Susi hefur vakið athygli manna með óhefðbundnum lækningaaðferðum en meðfram hefðbundnum dýralækningum stundar hún hnykkingar á hestum. Tilgangurinn með hnykkingum er sá að jafna hreyfigetuna í hryggjarliðum.
Í fyrirlestrinum kynnir hún hnykkingameðferð og svarar nokkrum spurningum, til dæmis:
- Hvað gera hnykkingar fyrir hestinn?
- Hvað gera taugarnar fyrir líkamsstöðuna?
- Hvað orsakar læsingar?
- Hvaða einkenni sýnir hestur sem er með læsta liði?
Boðið verður upp á fyrirlestur og verklegan tíma. Sýnt verður hvernig knapi getur sjálfur greint að um skekkju eða læsta liði er að ræða og hvernig þetta kemur fram í reið eða í lónseringu. Þátttakendur læra um eðilega og óeðilega hreyfigetu hestsins sem eru afleiðingar læsingana í liðnum likamannsins.
Aðgangseyrir kr. 2.000
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH