Töltið er upplifun
„Í hugum margra er hinn svokallaði hestaleiguhestur moldþægur og óspennandi. Þannig á það ekki að vera. Hestaleiguhestur á vissulega að vera þægur. En hann á einnig að vera hestur sem alla langar að fara á aftur, því hann er það góður. Þannig markaðssetjum- við íslenska hestinn,“ segir Bergljót Rist eða Begga Rist sem hefur undanfarin fjögur ár rekið fyrirtækið Íslenska hestinn í Fjárborg í Reykjavík.
Eiðfaxi ræddi við talsmenn hestaferðafyrirtækja sem sinna hinum ört stækkandi hópi erlendra ferðamanna sem sækja landið heim. Talið er að 17,3% erlendra ferðamanna greiði fyrir einhvers konar hestaferð.
Greinina má nálgast í 11. tölublaði Eiðfaxa. Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH