Heimalningar hjá Robba
Vöntun á félagsreknum hesthúsum hefur verið í deiglunni í tengslum við nýliðun í hestamennsku. Þetta er alls ekki óþekkt fyrirbæri. Í Faxabóli í Víðidal hefur Róbert Pedersen rekið félagshesthús í sextán ár. Þar stunda nú rúmlega tuttugu hestamenn áhugamál sitt af kappi. Eiðfaxi kíkti í heimsókn.
“Mér finnst alltaf gott að sitja hér og spjalla á meðan hestarnir eru úti að viðra sig,” segir Sandra um leið og hún býður blaðamanni heitt kakó. Hún hefur verið svokallaður “heimalningur” hjá Robba í áratug. “Ég fékk reiðnámskeið í afmælisgjöf þegar ég flutti til landsins. Robbi kenndi þar grundvöllinn í reiðmennsku. Síðar útvegaði hann mér hest til kaups. Hann hefur ekki losnað við mig síðan,” segir Sandra og hlær.
Viðtal við reiðkennarann Róbert og hestakonurnar Söndru og Ingibjörgu má nálgast í 1. tölublaði Eiðfaxa sem berst áskrifendum eftir helgi. Hægt er að panta áskrift í síma 511 6622 eða í gegnum tölvupóstfangið [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH