Kynbótasýningar
Nú er búið að stilla upp áætlun fyrir kynbótasýningar árið 2017.
Byrjað verður viku seinna en í fyrra og verður því dæmt lengra fram í júní í ár, áætlunin er sem hér segir:
– 22.05 – 26.05 Hafnarfjörður
– 29.05 – 02.06 Melgerðismelar
– 01.06 – 02.06 Fljótsdalshérað
– 29.05 – 02.06 Selfoss
– 06.06 – 09.06 Víðidalur í Reykjavík
– 06.06 – 16.06 Gaddstaðaflatir
– 06.06 – 09.06 Borgarfjörður
– 12.06 – 16.06 Sprettur í Kópavogi
– 12.06 – 16.06 Hólar í Hjaltadal
– 27.06 – 02.07 Fjórðungsmót Vesturlands
– 24.07 – 28.07 Miðsumarssýning Hólar í Hjaltadal
– 24.07 – 28.07 Miðsumarssýning Gaddstaðaflötum
– 21.08 – 25.08 Síðsumarssýning Selfossi
– 21.08 – 25.08 Síðsumarssýning Borgarfjörður
– 21.08 – 25.08 Síðsumarssýning Dalvík
Fjórðungsmót á Vesturlandi.
Fjórðungsmót verður haldið á Vesturlandi í ár, nánar tiltekið í Borgarnesi. Hross sem eru í eigu aðila á Vesturlandi, Vestfjörðum, Húnavatnssýslum eða Skagafirði eiga þáttökurétt á mótinu og er miðað við að lágmarki 25% eignarhlut. Ákveðin fjöldi efstu hrossa í hverjum flokki eiga þátttökurétt á mótinu og er því ekki um einkunnalágmörk að ræða (sjá fjölda í töflu hér að neðan). Miðað er við að 68 kynbótahross verði á mótinu. Til að auðvelda bestu klárhrossum með tölti að komast inn á mótið verður 10 stigum bætt við aðaleinkunn klárhrossa í sætisröðun hrossa inn á mótið. Þetta er sama leið og var farin fyrir síðasta landsmót hvað klárhrossin varðar. Þegar kynbótasýningar byrja næsta vor verður birtur stöðulisti í WorldFeng sem sýnir hvaða hross eru inni á mótinu hverju sinni. Ef fleiri en eitt hross eru jöfn í síðasta sæti inn á mótið þá er þeim öllum heimil þátttaka á mótinu. Eins verða eigendur hrossa sem vinna sér þátttökurétt á mótinu en ætla sér ekki að mæta með þau af einhverjum ástæðum beðnir um að láta vita fyrir ákveðna dagsetningu, þannig að hægt sé að bjóða hrossum sem eru neðar á listanum þátttöku á mótinu.
Fjöldi kynbótarhrossa á FM 2017:
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH